Erlent

Biðlar til nágrannanna

Á fjölþjóðlegri ráðstefnu um vargöldina í Írak sem hófst í Bagdad í morgun biðlaði Nuri al-Maliki, forsætisráðherra landsins, til nágrannaríkjanna um að aðstoða í baráttunni við hryðjuverkamenn. Hópur íraskra uppreisnarmanna hótar að drepa þýsk mæðgin sem hann hefur í haldi sínu yfirgefi þýskar hersveitir ekki Afganistan innan tíu daga.

Íraska ríkisstjórnin stendur fyrir ráðstefnunni í Bagdad en hana sitja erindrekar Bandaríkjanna, helstu nágrannaríkja Íraks, auk fulltrúa Arababandalagsins og öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Þetta er í fyrsta sinn í langan tíma sem bandarískir embættismenn funda með kollegum sínum frá Sýrlandi og Íran. Bandarísk stjórnvöld segja þessi nágranna Íraka eiga sinn þátt í að magna upp ofbeldið í landinu og neituðu til skamms tíma að ræða við þá um málið. Ástandið er hins vegar orðið svo slæmt að fá verður alla þá að samningaborðinu sem á annað borð geta aðstoðað. Ítök Írana hjá íröskum sjíum eru umtalsverð en stigvaxandi átök þeirra við súnnía eru einmitt í brennidepli á ráðstefnunni.

Í setningarræðu sinni sagðist Nuri al-Maliki, forsætisráðherra Íraks, vonast eftir stuðningi nágranna sinna í baráttunni við þá hryðjuverkahópa sem standa fyrir skálmöldinni í landinu. Væntingar til ráðstefnunnar eru hóflegar en vonast er þó til að með henni verði stigið fyrsta skrefið í einhvers konar friðarferli og að í næsta mánuði fundi utanríkisráðherrar ríkjanna um ástandið.

Um svipað leyti og ráðstefnan var sett birtu arabísku sjónvarpsstöðvarnar al-Arabiya og al-Jazeera myndband sem sagt er frá íröskum andspyrnuhópi sem kallar sig "Örvar réttlætisins". Á myndbandinu hóta talsmenn hans að myrða þýsk mæðgin sem hann hefur í haldi sínu kalli Þjóðverjar ekki hersveitir sínar heim frá Afganistan innan tíu daga. Þýsk stjórnvöld hafa ekki viljað staðfesta hvort fólkið í myndbandinu sé Hannelore Krause og uppkominn sonur hennar sem talið er að hafi verið rænt í Írak á dögunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×