Erlent

Söngvari Boston látinn

Söngvari hljómsveitarinnar Boston fannst látinn á heimili sínu í gær. Brad Delp, sem var 55 ára, var söngvari sveitarinn þegar hún gerði lögin „More Than a Feeling“ og „Long Time“ vinsæl.

Lögregla segir að ekkert grunsamlegt sé við dauða Delps en enn á eftir að ákvarða dánarorsökina.

Vefsíða sveitarinnar var tekin niður eftir að Delp lést og nú stendur þar aðeins „Viðkunnalegasti maðurinn í rokki var að yfirgefa okkur.“ Delp gekk í Boston snemma á áttunda áratugnum. Fyrsta plata þeirra félaga, sem einnig hét Boston, varð gríðarlega vinsæl.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×