Erlent

Sagaði húsið í tvennt

Þjóðverji einn ákvað að binda endi á skilnaðardeilu við konu sína með því að saga timburhús þeirra í tvennt með keðjusög og fara með sinn hluta í burtu með gaffallyftara.

Lögregla í bænum Sonnenberg sagði í gær að maðurinn, sem væri iðnaðarmaður, hefði mælt húsið, sem var átta metra langt og sex metra breitt, og síðan sagað það í tvennt.

„Maðurinn sagði að hann væri bara að taka það sem væri hans,“ sagði talsmaður lögreglu „en ég held að konan hans hafi ekki verið ýkja ánægð.“

Eftir að hafa sagað timburhúsið í tvennt, tók maðurinn sinn hluta með gaffallyftara og keyrði með sinn helming til bróður síns þar sem hann hefur búið síðan.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×