Erlent

Mannskætt námuslys

Búið er að finna sextíu og einn námumann látinn, eftir gassprengingu sem varð í kolanámu í Síberíu, í dag, að sögn Itar Tass fréttastofunnar. Yfirvöld segja að 186 námumenn hafi verið við vinnu þegar sprengingin varð. Búið er að bjarga einhverjum tugum upp á yfirborðið, en enn er ekki vitað um endanlegt manntjón.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×