Erlent

Ástandið í Írak veldur vonbrigðum

Utanríkisráðherra segir að ástandið í Írak valdi vissulega vonbrigðum en það sé áfram stefna íslensku ríkisstjórnarinnar að styðja írösku þjóðina eftir megni. Fjögur ár eru í dag frá upphafi átaka í landinu og endurreisn landsins heldur áfram í skugga ofbeldis.

Íslendingar voru meðal þeirra þjóða sem studdu innrásina og voru á lista Bandaríkjamanna yfir svokallaðar staðfastar stuðningsþjóðir. Því hefur ekki verið breytt. Afsökunarbeiðni var þó krafist á fundi stríðsandstæðinga í Austurbæ í Reykjavík í gærkvöldi.

Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, segir íslenska ríkisstjórn vona að lýðræðisþróun haldi áfram í Írak og enduruppbygging einnig. Það séu vonbrigði hvernig mál hafi þróast þar síðustu árin. Stefna íslenskra stjórnvalda nú sé að sú að stuðla að lýðræðisþróun og efnahagslegri enduruppbyggingu. Ísland hafi stutt Íraka með tæplega 400 milljóna króna framlagi þannig að það sé það sem skipti máli í dag.

Ýmsar ásakanir hafa komið fram um að einhver hluti fjárframlaga víða að hafi ekki farið á réttan stað. Valgerður segir ómöglegt að segja til um hvort allt fé hafi skilað sér. Umræða um slíkt komi alltaf fram. Hún segir eftilit hins vegar gott og undartekning að fé skili sér ekki að verulegu leyti.

Börkur Gunnarsson, fyrrverandi upplýsingafulltrúi Atlantshafsbandalagsins í Írak, var gestur í Hádegisviðtalinu í dag. Hann starfaði í Írak í fimmtán mánuði en kom aftur heim til Íslands í fyrravor. Hann segir allt fé sem hafi farið frá Íslandi í gegnum NATO hafi farið á réttan stað og í kaup á réttum hlutum.

Hann gerir athugasemdir við umræðu um að ein ástæðan fyrir óförunum í Írak sé að her og lögregla hafi verið leyst upp í byrjun. Hernaðarsérfræðingar segja þetta orðum aukið. Börkur segist hafa unnið mikið með Írökum og þar hafi verið ofursta í hernum sem hafi verið í gamla íraska hernum. Þaðan hafi komið menn sem tóku þátt í uppbyggingu nýs hers eftir að sá gamli var leystur upp.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×