Erlent

Vilhjálmur hættur með kærustunni

Óli Tynes skrifar
Vilhjálmur prins og Kate Middleton.
Vilhjálmur prins og Kate Middleton.
Vilhjálmur erfðaprins Bretlands er hættur með Kate Middleton, kærustu sinni til margra ára. Breska blaðið The Sun segir að vinir Vilhjálms hafi staðfest þetta. Talsmaður konungsfjölskyldunnar sagði hinsvegar aðeins að ekki yrði rætt um einkamál prinsins. Sun segir að skilnaðurinn hafi verið vinsamlegur.

Vilhjálmur og Kate Middleton hittust þegar þau voru bæði við námi við St. Andrews háskólann í Skotlandi. Hann er 24 ára gamall en hún 25. Þau sáust síðast saman opinberlega á skíðum í Sviss, í síðasta mánuði, og fór þá vel á með þeim.

The Sun segir að brestir hafi komið í sambandið eftir að Vilhjálmur útskrifaðist frá Sandhurst herskólanum í desember síðastliðnum. Blaðið hefur eftir nánum vini þeirra að síðan hafi prinsinn lítið getað sinnt vinkonu sinni. Hún kúldrist í íbúð sinni í Lundúnum, en hann í yfirmannamessa í herstöð sinni.

Fjölmiðlar í Bretlandi hafa þóst vissir um að Kate Middleton yrði í framtíðinni drottning Englands. Konungsfjölskyldan hefur tekið henni mjög vel og boðið henni að vera við opinberar athafnir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×