Erlent

Sarko og Sego sögð örugg í aðra umferð

Nicolas Sarkozy er ásamt Segolene Royal sagður öruggur um að vera kominn í aðra umferð frönsku kosninganna.
Nicolas Sarkozy er ásamt Segolene Royal sagður öruggur um að vera kominn í aðra umferð frönsku kosninganna. MYND/AP

Belgísk fréttastofa birti nú rétt í þessu kosningaspá sem bendir til að Nicolas Sarkozy og Segolene Royal hafi komist áfram í síðari umferð frönsku forsetakosninganna. Franskir fjölmiðlar mega ekki birta slíkar spár fyrr en eftir að kjörstöðum hefur verið lokað.

Að sögn Belga-fréttastofunnar hefur Sarkozy örlítið forskot á Royal en niðurstöður sínar byggir hún á fyrstu útgönguspám.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×