Erlent

Risamoska í Kaupmannahöfn

Óli Tynes skrifar
Hin fyrirhugaða moska í Kaupmannahöfn er allt öðruvísi en hefðbundnar moskur múslima.,
Hin fyrirhugaða moska í Kaupmannahöfn er allt öðruvísi en hefðbundnar moskur múslima.,

Alheimssamband múslima hefur tekið fagnandi teikningum af risastóru bænahúsi í Kaupmannahöfn. Moskan er nokkuð nútímaleg, eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Hún er hvorki með spírum né hvolfþaki, eins og bænahús múslima í Miðausturlöndum. Hönnuður hennar segir að það hafi vakið mikla hrifningu múslima.

Arkitektin Jan Wenzeles kynnti teikningar sínar af moskunni á fundi í New York. Hún á að fá nafnið Moskan mikla í Kaupmannahöfn. Wenzeles segir að fundarmenn hafi verið afar hrifnir og gjarnan viljað styðja byggingu moskunnar. Hann er því sannfærður um að moskan verði reist í höfuðborginni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×