Erlent

99 bandarískir hermenn látnir í Írak í apríl

Bandarískir hermenn í Írak.
Bandarískir hermenn í Írak. MYND/AFP

Fjöldi bandarískra hermanna sem hafa látist í Írak í þessum mánuði er kominn upp í 99. Í dag og í gær hafa níu bandarískir hermenn látist. Fjórir létust í vegasprengjum suður og suðaustur af Bagdad í dag samkvæmt upplýsingum frá yfirmönnum í bandaríska hernum. Í gær létust fimm hermenn í bardaga í vesturhluta Anbar héraðs sem er höfuðvígi súnní múslima.

Aprílmánuður hefur verið sá blóðugasti fyrir bandaríska hermenn á þessu ári. Frá upphafi stríðsins í mars 2003 hafa 3,346 bandarískir hermenn látist samkvæmt tölum frá AP fréttastofunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×