Erlent

Styttist í þingkosningar á Írlandi

Guðjón Helgason skrifar

Mary McAleese, forseti Írlands, hefur leyst upp þing í landinu og boðað til kosningar tuttugasta og fjórða maí næstkomandi. Þetta er gert að ósk Berties Ahern, forsætisráðherra. Kosið er til þings á Írlandi á fimm ára fresti.

Skoðanakannanir benda til þess að mjótt verði á mununum en Ahern sækist eftir því að halda forsætisráðherraembættinu þriðja kjörtímabilið í röð. Nýtt þing kemur saman um miðjan júní til að kjósa nýja ríkisstjórn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×