Erlent

Árás á lögreglustöð í Aþenu

Óli Tynes skrifar
Frá Aþenu.
Frá Aþenu.

Handsprengju var kastað á lögreglustöð í Aþenu í morgun, og sautjan skotum skotið á hana úr skammbyssum. Enginn slasaðist en skemmdir urðu á húsinu og lögreglubílum. Talið er að árásarmennirnir tilheyri einhverjum hópi stjórnleysingja og vinstri manna, sem hafa gert margar árásir á lögreglustöðvar og banka undanfarnar vikur.

Enginn séstakur tilgangur virðist vera með þessum árásum. Engar kröfur hafa verið settar fram, þótt í einu tilfellinu hafi því verið lýst yfir að árás hefði verið gerð til stuðnings félögum sem sætu í fangelsi. Ekki var þó sagt hverjir þessir félagar væru, þannig að lögreglan er engu nær.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×