Erlent

Enn í sjokki

Óli Tynes skrifar
Mennirnir héldu að þeir hefðu séð  draug.
Mennirnir héldu að þeir hefðu séð draug.

Þegar starfsmenn líkhúss á sjúkrahúsi í Dublin komu til þess að sækja mann sem hafði látist á einni deild sjúkrahússins byrjuðu þeir á að breiða lak fyrir andlit hans. Svo ýttu þeir rúminu á undan sér út af sjúkrastofnunni. Þá vaknaði líkið og settist upp.

Enginn skilur hvernig það gerðist að maðurinn var úrskurðaður látinn. Og það var ekki bara líkhúsinu tilkynnt um látið, heldur einnig ættingjum hans.

Ættingjarnir voru að vonum glaðir að heyra að maðurinn væri risinn upp frá dauðum. En líkflutningamennirnir eru ekki enn búnir að jafna sig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×