Erlent

Sprengingar heyrast frá Græna svæðinu

Allt að tólf háværar sprengingar heyrðust í miðborg Bagdad í kvöld og reykur sást stíga upp frá Græna svæðinu svokallaða. Talið er að reykurinn hafi komið frá svæði írakskra stjórnvalda. Enn hafa engar fregnir borist af mannfalli eða skemmdum.

Skemmst er þess að minnast þegar sjálfsmorðssprengjuárás var gerð í írakska þinginu. Hingað til hefur Græna svæðið verið talið eitt af fáum svæðum sem er nær öruggt. Sprengingarnar undanfarið virðast hins vegar draga upp aðra mynd.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×