Erlent

Herskip mögulega við landið til lengri tíma

Bryndís Hólm skrifar

Yfirmaður norska hersins segir afar mikilvægt að herinn geti stundað æfingar á Íslandi eins og nýtt varnarsamkomulag landanna geri ráð fyrir. Hann segir að til greina komi að hafa herskip við landið til lengri tíma. Formaður varnarmálanefndar norska Stórþingsins segir varnasamstarf við Ísland fela í sér mikla möguleika en gagnrýnir norsk stjórnvöld fyrir að hafi teygt fulllangt í samningum við Ísland.

Sverre Diesen, yfirmaður norska hersins, er ánægður með samninginn sem náðst hefur um varnarsamstarf Íslendinga og Norðmanna á friðartímum. Hann segir ljóst að Ísland sé aðili að NATO og Norðmenn líti svo á að það sé mikilvægt að getað stundað æfingar á öllum þeim svæðum sem heyri undir NATO. Hann er spenntur fyrir þeim möguleika að æfa á þessum svæðum, fyrir norska herinn sé það áhugaverður möguleiki og spennandi áskorun.

Diesen segir að rætt hafi veirð um að nota herþotur og flugvélar til að byrja með, sem geti komið til Íslands og tekið þátt í æfingum í grennd við Ísland, þar sem útgangspunkurinn yrði Keflavík, ásamt vélum frá öðrum NATO-ríkjum. Það kæmi líka til greina að hafa herskip, sem yrðu til staðar á svæðinu, en það velti á því um hvers konar heræfingar yrði að ræða.

Jan Pettersen, fyrrverandi utanríkisráðherra Noregs og formaður varnarmálanefndar norska Stórþingsins, segir jákvætt að efla samstarf þjóðanna. Hvað varðar þá umræðu um að Íslendingar geti komið betur til móts við Norðmenn í umdeildum málum nú þegar samstarf verði nánara segir hann að flókin ágreiningsmál verði leyst á sinn hátt, þau falli ekki undir samninginn um varnarsamstarf landanna. Að hans mati hafi Noregur komið mikið til móts við Ísland, sérstaklega í tengslum við síldarsamningana. Pettersen hefði ekki gengið svo langt eins og norska ríkisstjórnin hafi gert í þeim efnum. Hann telji Norðmenn eiga rétt á stærri hlut en þeir hafi samþykkt.

Viðtölin við Diesen og Pettersen er hægt að sjá í fullri lengd hér að neðan. Þau eru ótextuð en hægt er að sjá þýðinguna á þeim í meðfylgjandi skjölum sem má einnig finna hér að neðan.  




Fleiri fréttir

Sjá meira


×