Erlent

Kviknakin og drukkin undir stýri

MYND/Getty Images

Þýskur bensínafgreiðslumaður hringdi á lögreglu eftir að nakin kona keyrði upp að bensíndælu og bað hann um að fyll´ann. Konan hafði keyrt að dælunni með miklum látum. Hún lá á flautunni og blikkaði ljósunum til að ná athygli Jan Matthausen bensínafgreiðslumanns frá Chemnitz.

Þegar kviknakin konan rúllaði niður rúðunni leist Jan ekki betur en svo á að hann hringdi strax í lögregluna.

Hún kom á staðinn og tók öndunarsýni af konunni. Það leiddi í ljós að hinn 38 ára kvenkyns ökumaður var sjö-falt yfir leyfilegum áfengismörkum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×