Erlent

Tveir hermenn reyndu flugrán á Kúbu

Tveir kúbverskir hermenn reyndu í nótt að ræna flugvél á flugvellinum í Havana á Kúbu. Þeir tóku foringja úr hernum í gíslingu og tóku hann af lífi stuttu síðar. Mennirnir tveir voru að reyna að flýja úr hernum. Lögregla reyndi þá að frelsa gísla sem hermennirnir höfðu í haldi og eftir langan skotbardaga náði lögregla að yfirbuga þá.

Þeir eru nú í haldi lögreglu í Havana. Þetta er fyrsta tilraun til flugráns á Kúbu síðan árið 2003. Þá var flugvél rænt og flogið til Flórídaríkis í Bandaríkjunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×