Erlent

Svarnir andstæðingar sóru embættiseiða

Guðjón Helgason skrifar
Martin McGuinness, fulltrúi Sinn Fein, Bertie Ahern, forsætsiráðherra Norður-Írlands, Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, Peter Hain, Norður-Írlandsmálaráðherra í bresku ríkisstjórninni, og Ian Paisley, formaður sambandssinna á Norður-Írlandi, glaðir á fundi í þinghúsinu í Stormont-kastala í Belfast í morgun.
Martin McGuinness, fulltrúi Sinn Fein, Bertie Ahern, forsætsiráðherra Norður-Írlands, Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, Peter Hain, Norður-Írlandsmálaráðherra í bresku ríkisstjórninni, og Ian Paisley, formaður sambandssinna á Norður-Írlandi, glaðir á fundi í þinghúsinu í Stormont-kastala í Belfast í morgun. MYND/AP

Heimastjórn tók til starfa á ný á Norður-Írlandi í morgun þegar svarnir andstæðingar sóru eiða í Stormont kastala. Tæp fimm ár eru frá því að heimastjórnin var aflögð vegna njósnahneykslis og málefni Norður-Íra færð í hendur ráðherra í Lundúnum.

Það hefur andað köldu milli Ians Paisleys, leiðtoga sambandssinna á Norður-Írlandi, og Martins McGuinness, fulltrúa Sinn Fein.

Þrátt fyrir það sóru þeir embættiseiða í morgun með viðhöfn.

Heimastjórn hefur ekki verið starfandi á Norður-Írlandi frá því síðla árs 2002 en þá réðst lögregla inn á þingskrifstofu Sinn Fein í Stormont kastala og lagði hald á pappíra. Grunur var um njósnir Írska lýðveldishersins innan heimastjórnarinnar og stjórnin því lyst upp og vald fært til Lundúna.

Eftir það var allt reynt til að koma aftur á heimastjórn en illa gekk. Svo fór að Peter Hain, Norður-Írlandsmálaráðherra setti neyðarlög til að þvinga fram heimastjórn og frestur til að skipa hana gefinn til loka mars. Þá settust Paisley og Gerry Adams, formaður Sinn Fein, stjórnmálaarms Írska lýðveldishersins, saman niður til fundar í þinghúsinu í Stormont en áður höfðu þeir ekki hittst augliti til auglitis til viðræðna fyrr. Samið var um heimastjórn og tók hún svo við völdum í morgun.

Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, og Bertie Ahern, forsætisráðherra Írlands voru viðstaddir athöfnina.

Paisley sagðist bjartsýnn á framhaldið og að Norður Írland væri loks komið á framfarabrautina. McGuinness tók í svipaðan streng og sagðist þess fullviss að þessir fornu fjendur gætu starfað saman í sátt og samlyndi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×