Erlent

Sjónvarpsáhorf í Bandaríkjunum snarminnkar

Sigríður Guðlaugsdóttir skrifar
Það er af sem áður var þegar fólk safnaðist saman til að horfa á sjónvarp.
Það er af sem áður var þegar fólk safnaðist saman til að horfa á sjónvarp. MYND/Getty Images

Taugatitringur hefur gripið um sig meðal helstu sjónvarpsstöðva í Bandaríkjunum eftir að verstu áhorfstölur í manna minnum voru birtar. Fækkunin í mars og apríl nam rúmlega tveimur og hálfri milljón sjónvarpsáhorfenda frá sömu mánuðum í fyrra.

Flestir hafa skýringar á reiðum höndum; Að sumartími spili inn í, of margar endursýningar, slæmir sjónvarpsþættir, fleiri þættir eru teknir upp og fólk hleður þáttum niður af internetinu.

Það sem sjónvarpsstöðvarnar hræðast mest er hugmyndin um að fólk sé að búa til þeirra eigin dagskrá. Núverandi tækni gerir stöðvunum ekki mögulegt að fylgjast með því svo þær óttast að auglýsingatekjur lækki. Á síðast ári fengust um 800 milljarðar íslenskra króna í auglýsingatekjur.

CNN hefur eftir Sarah Buntin einum stofnanda vefsíðunnar „Television Without Pity" að tímabilið geti verið vísir að tímamótum í því hvernig sjónvarpsmenningin sé að breytast.

Og tímasetningin er slæm fyrir stöðvarnar, því í næstu viku kynna þær haust- og vetrardagskránna fyrir auglýsendum.

Talsmenn stöðvanna halda því þó fram að áhorf sé að breytast, ekki endilega minnka. En sumir auglýsendur segjast ekki vilja borga fullt verð fyrir áhorfendahóp sem verði kannski ekki við tækin.

Í síðustu viku var slegið met í litlu áhorfi hjá NBC sjónvarpsstöðinni þegar minnsta vikuáhorf á síðustu tuttugu árum mældist, ... það var slegið aftur viku seinna.

Þættir eins og Survivor og Lost hafa misst helming áhorfenda sinna, eða meira en tíu milljón frá því þeir voru sem vinsælastir. Og Sopranos eru að renna skeið sitt á enda.

Þættir á borð við American idol og Dancing with the Stars halda dampinum fyrir sjónvarpsmarkaðinn vestra.

Niðurstöður Nielsen Media könnunarinnar voru þær að áhorfendahópurinn í mars og apríl hefði fallið úr 40,3 milljónum á síðasta ári í 37,6 milljónir í ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×