Erlent

Grænmetisætur sveltu kornabarn í hel

Óli Tynes skrifar
Jade Sanders og Lamont Thomas fyrir rétti.
Jade Sanders og Lamont Thomas fyrir rétti. MYND/AP

Bandarískir foreldrar hafa verið dæmdir í lífstíðarfangelsi fyrir að svelta kornabarn sitt í hel. Crown Shakur var aðeins 1500 grömm að þyngd þegar hann lést, sex vikna gamall. Foreldrarnir, Jade Sanders og Lamont Thomas eru grænmetisætur og gáfu barninu mat í samræmi við þann lífsstíl sinn. Crown litli fékk aðallega smáskammta af eppelsínusafa og sojamjólk.

Foreldrarnir margítrekuðu fyrir rétti að þau hefðu elskað son sinn og gert sitt besta til að annast hann. Það hafði engin áhrif á dómarann sem sagði: "Það er alveg sama hvað þið segið oft við erum grænmetisætur, við erum grænmetisætur. Barnið dó af því að það fékk ekki mat."

Foreldrarnir ætla að áfrýja dóminum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×