Erlent

Danskar ástir

Óli Tynes skrifar
Sumarhús í Marielyst.
Sumarhús í Marielyst.

Tuttugu og sex ára gamall Dani var dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir að lauma sér undir sængina hjá kærustu besta vinar síns og eiga við hana mök. Án þess að hún uppgötvaði að það var ekki kærastinn sem hún var að gamna sér með.

Undanfarin þrjú ár hafði vinafólkið leigt sér sumarhús í Marielyst og eytt þar tíma saman. Kæran hljóðaði uppá að stúlkan hefði verið sofnuð en vinurinn farið út til þess að reykja. Hann hefði svo smeygt sér inn um svefnherbergisgluggann og upp í rúm til hennar.

Vinurinn áfrýjaði dóminum en tilkynnti sig veikann þegar málið var tekið fyrir í Eystri Landsrétti í gær. Hann fékk frest til klukkan fjögur í dag til þess að skila læknisvottorði. Annars verður dómur undirréttar staðfestur.

 

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×