Landspítala óheimilt að segja Salmann upp 10. maí 2007 17:00 MYND/GVA
Hæstiréttur sneri í dag dómi Héraðsdómur Reykjavíkur í máli Salmanns Tamimi, formanns Félags múslíma á Ísland, á hendur Landspítalanum vegna uppsagnar í starfi á upplýsingatæknisviði spítalans. Salmann var í hópi fimm manna sem sagt var upp á þegar skipulagsbreytingar voru gerðar í haust. Fyrir dómi hélt hann því meðal annars fram að honum hefði verið sagt upp vegna trúarbragða sinna og kynþáttar og þá benti hann á að hann hefði hvað lengstan starfsaldur allra starfsmanna upplýsingatæknisviðs. Landspítalinn hélt því hins vegar fram að lögmætt hefði verið að segja Salmann upp vegna þess að verkefnum hans hefði fækkað með skipulagsbreytingunum. Fór Salmann fram á að ákvörðun um uppsögn hans yrði felld úr gildi en því hafnaði héraðsdómur. Hæstiréttur komst hins vegar að því að hafi starfsmaður sinnt ákveðnu verkefni á tilteknu tímabili dugi ekki að líta eingöngu til þess að það verkefni muni dragast saman eða leggjast af heldur þurfi jafnframt að leggja frekara mat á hæfni manns í samanburði við aðra starfsmenn. Var talið að Landspítalanum hefði verið skylt að leggja frekara mat á hæfni Salmanns áður en tekin var ákvörðun um uppsögn hans. Taldi Hæstiréttur því að ekki hefði verið staðið réttilega að ákvörðunni. Rétturinn féllst hins vegar ekki á aðalkröfu Salmanns um að uppsögnin yrði felld úr gildi en viðurkenndi að Landspítalanum hefði verið óheimilt að segja honum upp störfum á þeim grunni sem gert var.
Dómsmál Mest lesið Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Segir af sér vegna lestarslysa Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Fleiri fréttir Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Sjá meira