Erlent

Gaman hjá Sir Alex

Óli Tynes skrifar
Sir Alex er í góðri þjálfun við að lyfta allskonar kollum.
Sir Alex er í góðri þjálfun við að lyfta allskonar kollum.

Fótboltastjórinn Sir Alex Ferguson hefur í samvinnu við nokkra aðra auðmenn keypt 279 breska pöbba. Kaupverðið er um níu milljarðar íslenskra króna. Meðal annarra kaupenda er Idol dómarinn Simon Cowell. Seljandi er Marstons brugghúsið.

Ekki er búist við að þeir Sir Alex og Cowell standi sjálfir á bakvið barborðið við að afgreiða bjór, enda hefur verið gerður samningur við Scottish & Newcastle um rekstur þeirra. Hinsvegar má gera ráð fyrir að þeir félagar fái einn og einn fríann, ef þeir heimsækja pöbba sína.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×