Erlent

Villtist á leið að vændishúsi

MYND/AP

Lögreglan á Spáni stöðvaði á dögunum fjölfatlaðan mann sem var á leið í hjólastól sínum til vændishúss í næsta nágrenni. Maðurinn var einn á ferð og hafði villst á leiðinni og var kominn út á hraðbraut.

Maðurinn er mikið fatlaður og 95% af líkaman hans lamaður. Því stjórnar hann hjólastól sínum með munninum. Hann var komin langa leið eftir hraðbrautinni þegar lögregla stöðvaði hann og spurði hvert hann væri að fara. Maðurinn svaraði þá að hann væri á leið á vændihús en hefði beygt af leið. Lögregla hjálpaði honum af hraðbrautinni og sagði maðurinn að förinni yrði haldið áfram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×