Eggert styður leitina að Madeleine McCann Björn Gíslason skrifar 14. maí 2007 11:22
Eggert Magnússon, stjórnarformaður enska úrvalsdeildarliðsins West Ham, er í hópi þeirra sem heitið hafa fjármunum fyrir upplýsingar sem leitt geta til þess að breska stúlkan Madeleine McCann finnist. Hún var numin á brott í Algarve í Portúgal fyrir tæpum tveimur vikum þar sem fjölskylda hennar var í fríi. Alls hefur um 2,5 milljónum punda, jafnvirði um 315 milljóna króna, verið heitið fyrir upplýsingar um stúlkuna. Auk Eggerts hafa meðal annars Simon Cowell, knattspyrnumaðurinn Wayne Rooney, rithöfundurinn JK Rowling og milljarðarmæringurinn Richard Bransson heitið fé vegna málsins. Lögregla í Portúgal hefur viðurkennt að hún hafi engar vísbendingar um hvar Madeleine litla er niðurkomin og þá er enginn grunaður um aðild að hvarfi hennar. Foreldar stúlkunnar héldu stuttan blaðamannafund í morgun þar sem fram kom að þau myndu ekki snúa aftur til Bretlands fyrr en dóttir þeirra myndi finnast. Þau tryðu því enn að Madeleine væri á lífi. Formlegri leit að stúlkunni, sem er fjögurra ára, hefur verið hætt en lögregla rannsakar málið enn. Telja menn jafnvel hugsanlegt að mannræningjar hafi farið með Madeleine litlu frá Portúgal.
Madeleine McCann Mest lesið Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Sjá meira