Erlent

Frú Sarkozy kaus ekki eiginmanninn

Óli Tynes skrifar
Nicolas og Cecilia Sarkozy
Nicolas og Cecilia Sarkozy

Cecilia Sarkozy eiginkona nýkjörins forseta Frakklands greiddi ekki atkvæði í síðari umferð kosninganna, að sögn vefsíðunnar Rue89.com. Þetta er vinstri sinnuð fréttasíða sem fyrrverandi blaðamenn á dagblaðinu Liberation helda úti.

Rue89 segir að blaðamenn á dagblaðinu Le Journal du Dimanche hafi verið að vinna að frétt um að Cecilia Sarkozy hafi ekki kosið. Ritstjóri blaðsins hafi hinsvegar ákveðið að fréttin yrði ekki birt. Ritstjórinn hefur staðfest þetta í samtali við AFP fréttastofuna.

Hann segir að hann hafi litið á þetta sem persónulegt einkamál forsetafrúarinnar, sem ekki ætti erindi í fjölmiðla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×