Erlent

Ísraelar gera loftárásir á Gaza

Ísraelski herinn gerði í nótt loftárásir á heimili leiðtoga Hamas samtakanna á Gaza svæðinu í nótt. Talið er að átta fjölskyldumeðlimir hans hafi látið lífið í árásinni, en sjálfur var hann ekki á staðnum.

Ísraelska þingið hafði nokkrum klukkutímum áður samþykkt að auka aðgerðir á Gaza svæðinu til þess að reyna að koma í veg fyrir eldflaugaárásir þaðan á Ísrael. Alls hafa 30 manns látið lífið í árásum Ísraela á Gaza í síðastliðinni viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×