Viðskipti erlent

Vilja að Barclays dragi tilboðið til baka

ABN Amro.
ABN Amro. Mynd/AFP

Gengi hlutabréfa í breska bankanum Barclays hækkaði um 4,5 prósent í bresku kauphöllinni í Lundúnum í dag eftir að fjárfestingasjóður þrýsti á hluthafa bankans að falla frá yfirtökutilboði sínu í hollenska bankann ABN Amro.

Sjóðurinn heitir Atticus Capital og keypti fyrir skömmu eins prósenta hlut í ABN Amro, einum stærsta banka Hollands. Barclays ákvað í apríl að gera yfirtökutilboð í hollenska bankann upp á 64 milljarða evrur, jafnvirði um 5.500 milljarða íslenskra króna. Royal Bank of Scotland og tveir aðrir bankar í Evrópu gerðu móttilboð í bankann.

Í bréfi sem Atticus birti hluthöfum í breska dagblaðinu Financial Times um helgina, segir að meiri samlegðuáhrif væru að samruna Royal Bank of Scotland og ABN Amro. Gæti svo farið að kaupin verði Barclays of stór biti að kyngja.

Fréttaveitan Bloomberg hefur eftir greinanda hjá verðbréfafyrirtækinu Teather & Greenwood, sem er í eigu Landsbankans, að þrýstingurinn hafi aukist til muna á stjórnendur og hluthafa Barclays að þeir hætti við kaupin á bankanum. Séu líkur á að gengi hlutabréfa í ABN Amro hækki eftir því sem á líði. Fyrirtækið hefur gefið út uppfært mat á ABN Amro segir mælir með því við hluthafa að þeir haldi í bréf sín í bankanum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×