Viðskipti erlent

Arabar komnir með fjórðung í Sainsbury

Úr kjötvöruborði Sainsbury.
Úr kjötvöruborði Sainsbury. Mynd/AFP
Konungsfjölskyldan í arabaríkinu Katar hefur hefur aukið við hlut sinn í bresku stórmarkaðakeðjunni og fer nú með rétt rúman fjórðung hlutabréfa í þessari þriðju stærstu verslankeðju Bretlands.

Fjárfestingasjóður fjölskyldunnar, Delta Two, kom inn í hluthafahóp Sainsbury undir lok aprílmánaðar, skömmu eftir að harðri yfirtökubaráttu um verslanakeðjuna lauk, og flaggaði þá 17,6 prósenta hlut.

Delta Two keypti 123 milljón hluta á 595 pens á hlut og nemur kaupverðið 732 milljónum punda, jafnvirði rúmra 46,5 milljarða íslenskra króna. Til samanburðar hljóðaði yfirtökutilboð fjárfestahópa, sem sjóðurinn CVC Capital leiddi, upp á 600 pens á hlut. Sjóðirnir féllu hins vegar frá yfirtöku vegna harðrar andstöðu ráðandi hluthafa.

Delta Two tengist fasteignamógúlnum Robert Tchenguiz, stjórnarmanni í Exista, sem á fimm prósenta hlut í Sainsbury. Rober hefur farið fram á setu í stjórn verslanakeðjunnar og þrýst á um að rekstrinum verði skipt upp í tvær einingar þar sem fasteignahlutinn yrði færður undir sjálfstæðan rekstur.

Gengi bréfa í verslanakeðjunni hækkaði um 4,3 prósent í bresku kauphöllinni í Lundúnum og stendur nú í um 589,5 pensum á hlut.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×