Viðskipti erlent

Berlínarborg selur í banka

Merki Landesbank á framhlið húss í Berlínarborg.
Merki Landesbank á framhlið húss í Berlínarborg. Mynd/AFP
Borgaryfirvöld í Berlín ætla að selja 81 prósents hlut sinn í þýska bankanum Landesbank Berlin til þýska bankans DSGV. Verðmæti hlutarins nemur um 5,35 milljörðum evra, jafnvirði rúmra 453 milljörðum íslenskra króna.

Landesbank rambaði á barmi gjaldþrots árið 2001 og fengu borgaryfirvöld leyfi hjá Evrópusambandinu til að koma bankanum til bjargar gegn því skilyrði að þau seldu hluti sína eigi síðar en árið 2008.

DSGV á nú þegar 11 prósenta hlut í Landesbank og munu viðskiptin færa hlutinn upp í 92 prósent. Mun bankinn í kjölfar viðskiptanna gera yfirtökutilboð í allt útistandandi hlutafé bankans, að sögn breska ríkisútvarpsins.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×