Viðskipti erlent

MySpace selt til Yahoo?

Rupert Murdoch.
Rupert Murdoch.

Ástralski auðkýfingurinn Rupert Murdoch er sagður íhuga þessa dagana að selja tengslaveituna MySpace undan fyrirtækjahatti News Corporation til netveitunnar Yahoo. Að sögn breska blaðsins Times mun Murdoch fara fram á fjórðungshlut í Yahoo á móti.

Murdoch keypti MySpace, sem var stofnað fyrir fjórum árum í Bandaríkjunum, í fyrir rétt tæpum tveimur árum fyrir 580 milljónir bandaríkjadala, jafnvirði rúmra 36 milljarða íslenskra króna.

Ekkert er enn í hendi. Markaðverðmæti Yahoo nemur 37 milljörðum dala, jafnvirði 2.307 milljarða íslenskra króna. Mun fjórðungshlutur í veitunni því nema 12 milljörðum dala, 748 milljörðum íslenskra króna.

Gangi viðskiptin með MySpace í gegn er gert ráð fyrir að markaðshlutdeild Yahoo komi til með að batna umtalsvert og geti fyrirtækið saxað vel á forskot bandaríska netleitarfyrirtækisins Google.

Ekki liggur fyrir hver næstu skref verða en framtíðarsýn Yahoo er í loftinu eftir að Terry Semel, forstjóri Yahoo, yfirgaf óvænt forstjórastólinn í vikubyrjun. Jerry Yang, annar af stofnendum Yahoo, tók við stjórninni af honum.

Breska ríkisútvarpið segir Yang ætla að gera hvað hann geti til að stýra Yahoo-skútunni á rétta leið. Það hefur hins vegar eftir markaðsaðilum, að fyrirtækið gæti orðið skotspónn í yfirtöku.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×