Viðskipti erlent

Ryanair meinað að kaupa Aer Lingus

Michael O'Leary, forstjóri Ryanair.
Michael O'Leary, forstjóri Ryanair. Mynd/AFP

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur meinað írska lággjaldaflugfélaginu Ryanair að gera yfirtökutilboð í írska flugfélagið Aer Lingus. Í úrskurði framkvæmdastjórnarinnar segir að kaupin myndu koma niður á samkeppni og geta valdið hækkun á fargjöldum.

Niðurstaðan er í samræmi við væntingar enda gerðu flestir ráð fyrir því að framkvæmdastjórnin yrði mótfallin tilboði Ryanair enda eru bæði flugfélögin með um 80 prósenta markaðshlutdeild á Írlandi.

Stjórn lággjaldaflugfélagsins gerði 1,5 milljarða evra, 125 milljarða íslenskra króna, yfirtökutilboð í Aer Lingus síðastliðið haust eftir að írska ríkið seldi megnið af hlut sínum í flugfélaginu.

Ryanair tryggði sér vænan skerf af hlutabréfum í flugfélaginu og situr á fjórðungi bréfanna.

Michael O'Leary, forstjóri Ryanair, var ævareiður út í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins og sagði bannið ólögmætt og eiga sér engin fordæmi. Sagði hann að ef fyrirtækinu myndu sameinast hefðu þau einungis um fimm prósenta hlutdeild innan evrópskrar lofthelgi og og kæmi það ekki niður á samkeppni við önnur flugfélög sem hafi hug á að fljúga til og frá Dublin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×