Krefjast ákæru á hendur foreldrum Madeleine Sigríður Guðlaugsdóttir skrifar 26. júlí 2007 18:30
Portúgalskir fjölmiðlar beina nú spjótum sínum að foreldrum Madeleine McCann og vinum þeirra sem voru með þeim kvöldið örlagaríka þegar stúlkunni var rænt. Þá hefur þess verið krafist að ákæra verði gefin út á hendur þeim fyrir að skilja börnin eftir. McCann hjónin borðuðu kvöldverð á tapas bar ásamt níu manna hóp kvöldið sem Madeleine hvarf. Hópurinn skiptist á að fara á hálftíma fresti til að líta eftir stúlkunni og tveggja ára tvíburasystrum hennar. Vitnisburði þess ber ekki saman um atburði kvöldsins og ásaka fjölmiðlar þau nú um að hafa bundist þagnareiði um málið. Hópurinn hefur ekki varið sig við ásökunum, en samkvæmt portúgölskum lögum er þeim ekki heimilt að tjá sig opinberlega um lögreglurannsóknina. McCann hjónin borðuðu kvöldverð á tapas bar ásamt níu manna hóp kvöldið sem Madeleine hvarf. Hópurinn skiptist á að fara á hálftíma fresti til að líta eftir stúlkunni og tveggja ára tvíburasystrum hennar. Vitnisburði þess ber ekki saman um atburði kvöldsins og ásaka fjölmiðlar þau nú um að hafa bundist þagnareiði um málið. Hópurinn hefur ekki varið sig við ásökunum, en samkvæmt portúgölskum lögum er þeim ekki heimilt að tjá sig opinberlega um lögreglurannsóknina. Fyrr í vikunni var faðir Madeleine, Gerry, gagnrýndur harkalega í sjónvarpsviðtali í Bandaríkjunum fyrir að skilja börnin eftir á hótelherberginu í stað þess að leigja barnfóstru. Sama gagnrýni hefur átt sér stað víða á spjallrásum internetsins. Þá verða raddir um að hjónin verði ákærð fyrir vanrækslu æ háværari í portúgal samkvæmt heimildum breska dagblaðsins Daily Express. Ekkert hefur spurst til Madeleine litlu frá því hún hvarf í sumarleyfisstaðnum Praia da Luz 3. maí síðastliðinn.
Madeleine McCann Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Innlent Fleiri fréttir Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Sjá meira