Segir að ræningjar Madeleine hafi gefið henni svefnlyf 2. október 2007 13:57 Foreldrar Madeleine. MYND/AFP
Líklegt er að ræningjar Madeleine McCann hafi gefið henni svefnlyf eða róandi lyf þegar þeir rændu henni að mati ömmu Madeleine. Að sögn ömmunnar hefði Madeleine að öðrum kosti látið í sér heyra þegar henni var rænt af hótelherberginu. Eileen McCann, móðir föður Madeleine, segir í samtali við breska dagblaðið The Mirror allar ásakanir á hendur syni sínum vera úr lausu lofti gripnar. Segir hún útilokað að sonur hennar og eiginkona hans beri ábyrgð á hvarfi Madeleine. „Hver sem tók hana hlýtur að hafa gefið henni svefnlyf eða róandi lyf. Það er útilokað að þeir hafi geta borið hana út úr herberginu án þess að hún hafi vaknað og látið í sér heyra," sagði Eileen. Sérfræðingar lögreglunnar í Birmingham í Bretlandi rannsaka nú hár sem fannst á hótelherbergi Madeleine og talið er vera af henni. Auk DNA rannsóknar verður einnig athugað hvort finna megi vísbendingar um að Madeleine hafi verið gefin lyf áður en henni var rænt. Portúgalska lögreglan hefur haft foreldra Madeleine undir grun í málinu frá því í sumar. Telja lögregluyfirvöld að foreldrarnir hafi vísvitandi reynt að spilla fyrir rannsókn málsins með því að beina athyglinni frá sjálfum sér. Foreldrar Madeleine hafa í hyggju að koma fram í sérstökum sjónvarpsþætti í Portúgal á næstunni í þeirri von að það muni leiða til þess að Madeleine komi í leitirnar.
Madeleine McCann Mest lesið Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Sjá meira