McCann hjónin greiddu lán úr sjóði Madeleine Sigríður Guðlaugsdóttir skrifar 30. október 2007 13:20 Kate og Gerry á leið á fund með lögmönnum sínum í London í ágúst. MYND/AFP
Gerry og Kate McCann borguðu tvær afborganir af íbúðarláni úr sjóðnum sem settur var á stofn til að efla leitina að Madeleine og styðja fjölskylduna. Þegar hjónin fengu hins vegar réttarstöðu grunaðra í Portúgal ákváðu þau að nota sjóðinn ekki fyrir persónulegar greiðslur. Clarence Mitchell sagði Sky fréttastofunni að sjóðurinn hefði verið hugsaður til að styðja einnig við fjárhag fjölskyldunnar ef það væri nauðsynlegt. Þau hefðu aðeins notað hann fyrir þessar tvær afborganir fyrr á árinu. Ákvörðunin um að þau myndu ekki sækja peninga í sjóðinn hefði verið sameiginleg á milli stjórnenda sjóðsins og hjónanna. Þau samþykktu fúslega að með nýja réttarstöðu hefðu þau ekki lengur tilkall til sjóðsins fyrir fjárhag fjölskyldunnar. Notkun fjármuna úr sjóðnum hefur sætt gagnrýni eftir að í ljós kom að þriðjungur peninganna hefur verið notaður til að greiða fyrir uppihald fjölskyldunnar, auglýsinga- og starfsmannakostnað. McCann hjónin segjast ekki nota sjóðinn til að greiða fyrir lögfræðiþjónustu. Mitchell sagði Sky að honum væri sem dæmi ekki greitt úr sjóðnum, heldur af aðilum sem styðja fjölskylduna fjárhagslega. Gerry mun snúa aftur til starfa fljótlega og hjálpa þannig til við að koma fjármálum fjölskyldunnar á réttan kjöl. Ólíklegt þykir að Kate hefji aftur störf sem heimilislæknir í bráð.
Madeleine McCann Mest lesið Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Sjá meira