Malakauskas fékk 16 mánaða fangelsisdóm Breki Logason skrifar 7. desember 2007 14:15 Tomas Malakauskas hylur andlit sitt.
Tomas Malakauskas, frægasti Lithái íslandssögunnar, var rétt í þessu dæmdur í 16 mánaða fangelsi fyrir að rjúfa endurkomubann með því að koma hingað til lands. Tomas var dæmdur í fangelsi árið 2004 fyrir aðild sína í hinu svokallaða líkfundarmáli. Þá faldi hann ásamt tveimur öðrum líkið af Vaidas Jucevicius í höfninni í Neskaupstað með 400 grömm af amfetamíni innvortis. Í kjölfarið af þeim dómi var hann dæmdur í 10 ára endurkomubann hingað til lands. Tomas fékk reynslulausn þegar hann átti 14 mánuði eftir af fangelsisdómnum í líkfundarmálinu. Hann hins vegar rauf þessa reynslulausn sína með því að koma hingað til lands og verður því að afplána þá 14 mánuði sem hann átti eftir af fyrri dómi. Þegar tekið var mið af sakaferli taldi dómurinn rétt að dæma Tomas í 16 mánaða fangelsi en til frádráttar kemur gæsluvarðhaldsvist hans frá 21. nóvember sl. til 4. desember. Tomas kom hingað til lands fyrir rúmum þremur mánuðum. Yfirvöld voru hinsvegar lengi að átta sig á veru Malakauskas sem hefur tekið upp eftirnafn íslenskrar unnustu sinnar sem hann á barn með. Tomas rauf ekki bara endurkomubann heldur var hann einnig gripinn með 26 grömm af amfetamíni. Amfetamínið var gert upptækt.
Líkfundarmálið Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands Innlent Fleiri fréttir Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Sjá meira