Flöggum Grænfánanum sem víðast
30.000 þátttakendurLandvernd stýrir Grænfánaverkefninu hér á landi en það er styrkt af umhverfisráðuneytinu og menntamálaráðuneytinu. Það var árið 2001 sem Landvernd hóf að kynna verkefnið fyrir skólum hér á landi og vorið 2002 voru þrír fyrstu Grænfánarnir dregnir að húni hér á landi. Nú eru 117 skólar þátttakendur í verkefninu og í þeim starfa samanlagt 30.000 manns. Þátttökuskólarnir eru 66 grunnskólar, 45 leikskólar, fjórir framhaldsskólar, einn vinnuskóli og einn háskóli.
Skrefin sjöTil þess að fá að flagga Grænfánanum verða skólar að stíga sjö skref. Fyrsta skrefið er að skipa umhverfisnefnd skólans sem í sitja fulltrúar nemenda, kennara og annars starfsfólks og foreldra. Næsta skref er að meta stöðu umhverfismála í skólanum. Þar er horft til fjölmargra þátta svo sem orkunotkunar, innkaupa og sorpflokkunar. Þriðja skrefið er að umhverfisnefndin setur skólanum markmið og gerir áætlun um aðgerðir til að ná settum markmiðum. Fjórða skrefið felst í að sinna eftirliti til þess að tryggja að aðgerðirnar miði að settum markmiðum. Fimmta skrefið er að nemendur fái markvissa umhverfismennt og að viðeigandi námsefni er bætt inn í skólanámskrá. Í sjötta skrefi eru skólar hvattir til að vekja áhuga annarra á umhverfismálum. Sjöunda skrefið að Grænfána er að skólinn setji sér umhverfissáttmála, móti framtíðarsýn og heildarstefnu fyrir skólann í umhverfismálum og umhverfismennt.
Eflir umhverfisvitundÞað er ljóst í mínum huga að skóli sem er með virka umhverfisstefnu hefur áhrif út á við, á heimili, sveitarstjórnir, fyrirtæki og samfélagið allt. Þess vegna tel ég Grænfánaverkefnið mjög mikilvægt framlag við að efla vitund þjóðarinnar um umhverfismál. Ég óska Landvernd og nemendum og starfsfólki Snælandsskóla til hamingju með daginn og hvet um leið aðra skóla til að setja markið hátt og gerast þátttakendur í Grænfánaverkefninu.
Höfundur er umhverfisráðherra
Skoðun
Sorg barna - fyrstu viðbrögð barna við missi
Matthildur Bjarnadóttir skrifar
Með styrka hönd á stýri í eigin lífi
Árni Sigurðsson skrifar
Hjólað inní framtíðinna
Búi Bjarmar Aðalsteinsson skrifar
Framsækin ríkisstjórn í umhverfis- og auðlindamálum: Nýi stjórnarsáttmálinn.
Stefán Jón Hafstein skrifar
Hugvíkkandi meðferðir eru fortíð okkar, nútíð og framtíð
Sara María Júlíudóttir skrifar
Komdu út að „Vetrar-leika“ í Austurheiðum Reykjavíkur
Sara Björg Sigurðardóttir skrifar
Upprætum óttann við óttann
Sóley Dröfn Davíðsdóttir skrifar
Hér er kona, um konu…
Vilborg Gunnarsdóttir skrifar
Vegna greinar Snorra Mássonar
Guðmundur Andri Thorsson skrifar
Ertu á krossgötum?
Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar
Vísvita villandi fréttaflutningur Morgunblaðsins?
Sigurjón Þórðarson skrifar
Hafa fyrrum æskunnar eftirlætisbörn og nú ellinnar olnbogabörn fengið nóg?
Gunnar Ármannsson skrifar
Máttur kaffibollans
Ásta Kristín Sigurjónsdóttir skrifar
Hefjum aðildarviðræður við Bandaríkin
Einar Jóhannes Guðnason skrifar
Eru tengsl milli Úkraínustríðsins og breyttrar stöðu Grænlands?
Hilmar Þór Hilmarsson skrifar
Árið 1975 er að banka
Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar
Viljum við að erlendir milljarðamæringar setji einhliða leikreglurnar í almannarýminu okkar?
Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Val Vigdísar
Skúli Ólafsson skrifar
Friður á jörðu
Þröstur Friðfinnsson skrifar
Af hverju eru kennarar að fara í verkfall?
Anton Már Gylfason skrifar
Opið bréf til Íslandspósts ohf.
Gróa Jóhannsdóttir skrifar
Gaza getur ekki beðið lengur
Hjálmtýr Heiðdal,Magnús Magnússon skrifar
Ísland yrði betra með aðild að Evrópusambandinu
Jón Frímann Jónsson skrifar
SVEIT – Kastið inn handklæðinu
Aðalsteinn Árni Baldursson skrifar
Skjáfíkn - vísindi eða trú?
Ásdís Bergþórsdóttir skrifar
Evrópusambandið eða nasismi
Snorri Másson skrifar
Friður eða svikalogn? Hilmari Þór Hilmarssyni, prófessor, svarað
Andri Þorvarðarson skrifar
Hlýnun jarðar mun ekki valda heimsendi
Sæunn Kjartansdóttir skrifar
Listin að styðja en ekki stýra
Árni Sigurðsson skrifar