Innlent

Besti flokkurinn fundar um næstu skref

Jón Gnarr ásamt öðrum frambjóðendum og borgarfulltrúum Besta flokksins funda í þessum töluðu orðum.
Jón Gnarr ásamt öðrum frambjóðendum og borgarfulltrúum Besta flokksins funda í þessum töluðu orðum.

Besti flokkurinn er að fara að funda um næstu skref í borgarstjórn en flokkurinn stendur með pálmann í höndunum eða sex borgarfulltrúa kjörna. Í Silfri Egils í hádeginu sagði Jón Gnarr, oddviti flokksins, að hann þyrfti að tala við sína flokksmenn áður en næstu skref yrðu ákveðin en sá fundur hófst fyrir stundu.

Á Facebook-síðu flokksins segir: „Leynifundur BF að hefjast."

Þegar haft var samband við Heiðu Kristínu Helgadóttur, staðfesti hún að fundurinn væri hafinn.

Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri og oddviti Sjálfstæðisflokksins, sagði einnig í Silfrinu að hennar flokkur myndi virða niðurstöður kjósenda og ræða fyrst við Besta flokkinn varðandi hugsanlegt meirihlutasamstarf.

Það er sá möguleiki í stöðunni að Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin myndi meirihluta en Hanna segir að það samrýmist ekki vilja kjósenda að byrja á því að semja við Samfylkinguna og skilja Besta flokkinn eftir. Þá hefur Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar, sagst ekki hugnast samstarf við Sjálfstæðisflokkinn.

Sjálfur hefur Jón Gnarr margsagt að hann vilji vinna með öllum.

Ekki er ljóst hvenær fundi Besta flokksins lýkur en þetta er fyrsti fundurinn sem þau halda eftir kosningar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×