Reynt að stinga rangan mann 17. júní 2010 06:00 Litið alvarlegum augum Málið hefur verið kært til lögreglu en enginn hefur enn verið handtekinn.Fréttablaðið/pjetur
Fjórir menn í annarlegu ástandi réðust inn í íbúð í sunnanverðum Hafnarfirði á laugardaginn var vopnaðir hnífum og réðust að húsráðanda sem þar var með ungum syni sínum. Mennirnir virðast hafa verið að leita að fyrrverandi leigjanda íbúðarinnar og gekk húsráðanda illa að koma þeim í skilning um að hann væri annar maður á milli þess sem hann vék sér undan atlögum mannanna, en tveir reyndu ítrekað að stinga hann í háls og kvið. Manninum tókst að forða syni sínum frá mönnunum og skömmu síðar virtust þeir átta sig á því að þeir hefðu farið mannavillt og létu sig hverfa. Enginn hefur verið handtekinn vegna málsins en lögreglan hefur hóp manna í sigtinu og telur nokkuð víst að árásarmennirnir séu í þeim hópi. Ekki er búið að ná tali af þeim öllum. Margeir Sveinsson, yfirmaður rannsóknardeildar lögreglunnar í Hafnarfirði, segir málið litið mjög alvarlegum augum. „Það gefur augaleið. Við kærum okkur ekki um að það sé verið að æða inn á heimili fólks með svona látum,“ segir hann. - sh
Fréttir Innlent Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Fleiri fréttir Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Sjá meira