Hamarskonan Julia Demirer og KR-ingurinn Unnur Tara Jónsdóttir hafa skilað mestu til sinna liða í fyrstu fjórum leikjum liðanna í lokaúrslitunum.
Julia er með 23,8 framlagsstig í leik en hún hefur tekið langflest fráköst í einvíginu. Julia er með 14,0 stig, 13,0 fráköst og 2,3 stoðsendingar að meðaltali en hún er með bestu skotnýtingu allra leikmanna í einvíginu eða 52,8 prósent.
Unnur Tara er með 23,3 framlagsstig í leik og hefur skorað langmest af öllum leikmönnum liðanna. Unnur Tara er með 20,8 stig, 7,8 fráköst og 2,8 stolna bolta að meðaltali en hún hefur hitt úr 51,7 prósent skota sinna í einvíginu.
KR-ingurinn Signý Hermannsdóttir er í þriðja sæti með 21,5 framlagsstig í leik en hún er langefst í plús og mínus í einvíginu. KR hefur unnið þær 113 mínútur sem Signý hefur spilað með 38 stigum en tapað með 23 stigum þær 47 mínútur sem hún hefur verið á bekknum. Signý hefur verið í villuvandræðum og er aðeins í 7. sæti yfir flestar spilaðar mínútur í einvíginu.
Aðrir leikmenn sem eru efstir í tölfræðiþáttum í einvíginu eru meðal annars, KR-ingarnir Hildur Sigurðardóttir og Margrét Kara Sturludóttir sem hafa gefið flestar stoðsendingar (23 - 5,8 í leik), Margrét Kara hefur stolið flestum boltum (13 - 3,3 í leik), Signý hefur varið flest skot (20 - 5,0 í leik), og KR-ingurinn Jenny Pfeiffer-Finora hefur skorað flestar þriggja stiga körfur (14 - 3,5 í leik).
Hér fyrir neðan má sjá helstu tölfræðiþætti í einvíginu til þessa.

Hæsta framlag í leik
Julia Demirer, Hamar 23,8
Unnur Tara Jónsdóttir, KR 23,3
Signý Hermannsdóttir, KR 21,5
Margrét Kara Sturludóttir, KR 19,8
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir, Hamar 12,8
Koren Schram, Hamar 12,5
Kristrún Sigurjónsdóttir, Hamar 11,8
Guðbjörg Sverrisdóttir, Hamar 11,7
Hildur Sigurðardóttir, KR 10,8
Jenny Pfeiffer-Finora, KR 10,3
Hæsta plús og mínus
Signý Hermannsdóttir, KR +38
Hildur Sigurðardóttir, KR +17
Julia Demirer, Hamar +16
Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir, KR +16
Unnur Tara Jónsdóttir, KR +8
Flest stig
Unnur Tara Jónsdóttir, KR 83
Koren Schram, Hamar 60
Jenny Pfeiffer-Finora, KR 60
Kristrún Sigurjónsdóttir, Hamar 59
Julia Demirer, Hamar 56
Margrét Kara Sturludóttir, KR 49
Signý Hermannsdóttir, KR 48
Flest fráköst
Julia Demirer, Hamar 52
Signý Hermannsdóttir, KR 36
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir, Hamar 33
Unnur Tara Jónsdóttir, KR 31
Margrét Kara Sturludóttir, KR 28
Hildur Sigurðardóttir, KR 26
Flestar stoðsendingar
Margrét Kara Sturludóttir, KR 23
Hildur Sigurðardóttir, KR 23
Kristrún Sigurjónsdóttir, Hamar 19
Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir, KR 16
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir, Hamar 14
Flestir stolnir boltar
Margrét Kara Sturludóttir, KR 13
Unnur Tara Jónsdóttir, KR 11
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir, Hamar 10
Koren Schram, Hamar 10
Jenny Pfeiffer-Finora, KR 9
Flest varin skot
Signý Hermannsdóttir, KR 20
Margrét Kara Sturludóttir, KR 8
Julia Demirer, Hamar 6
Unnur Tara Jónsdóttir,KR 4
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir, Hamar 4
Helga Einarsdóttir, KR 3
Flestar þriggja stiga körfur
Jenny Pfeiffer-Finora, KR 14
Koren Schram, Hamar 8
Margrét Kara Sturludóttir, KR 6
Fanney Lind Guðmundsdóttir, Hamar 5
Signý Hermannsdóttir, KR 4
Kristrún Sigurjónsdóttir, Hamar 4
Íris Ásgeirsdóttir, Hamar 4
Besta skotnýting (lágmark 6 hitt)
Julia Demirer, Hamar 52,8% (19/36)
Unnur Tara Jónsdóttir, KR 51,7% (31/60)
Guðbjörg Sverrisdóttir, Hamar 47,8% (11/23)
Kristrún Sigurjónsdóttir, Hamar 43,8% (21/48)
Signý Hermannsdóttir, KR 43,2% (19/44)
Margrét Kara Sturludóttir, KR 39,5% (17/43)
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir, Hamar 37,2% (16/43)
Besta 3ja stiga skotnýting (lágmark 4 hitt)
Kristrún Sigurjónsdóttir, Hamar 50,0% (4/8)
Íris Ásgeirsdóttir, Hamar 44,4% (4/9)
Signý Hermannsdóttir, KR 40,0% (4/10)
Jenny Pfeiffer-Finora, KR 35,9% (14/39)
Koren Schram, Hamar 29,6% (8/27)
Fanney Lind Guðmundsdóttir, Hamar 26,3% (5/19)
Besta vítanýting (lágmark 4 hitt)
Guðbjörg Sverrisdóttir, Hamar 100% (8/8)
Íris Ásgeirsdóttir, Hamar 100% (7/7)
Jenny Pfeiffer-Finora, KR 100% (4/4)
Kristrún Sigurjónsdóttir, Hamar 92,9% (13/14)
Unnur Tara Jónsdóttir, KR 90,9% (20/22)
Margrét Kara Sturludóttir, KR 90% (9/10)
Signý Hermannsdóttir, KR 85,7% (6/7)
Helga Einarsdóttir, KR 83,3% (5/6)
Koren Schram, Hamar 80% (12/15)
Julia Demirer, Hamar 75% (18/24)
Flestar spilaðar mínútur
Koren Schram, Hamar 141
Margrét Kara Sturludóttir, KR 140
Unnur Tara Jónsdóttir, KR 131
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir, Hamar 130
Kristrún Sigurjónsdóttir, Hamar 128
Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir, KR 114
Signý Hermannsdóttir, KR 113
Jenny Pfeiffer-Finora, KR 109
Julia Demirer, Hamar 105
Hildur Sigurðardóttir, KR 105