Innlent

Wikileaks: Bandaríkin börðust gegn lokun Varnarmálastofnunar

Össur Skarphéðinsson.
Össur Skarphéðinsson.

Bandarísk stjórnvöld beittu Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra miklum þrýstingi til að reyna að koma í veg fyrir að Varnarmálastofnun yrði lögð niður. Þetta kemur fram í leyniskjölum sem lekið var til Wikileaks.

„Sú freisting að geta skorið nærri tíu prósent af framlagi á fjárlögum til utanríkisráðuneytisins gæti einfaldlega reynst of mikil til þess að hinn hviklyndi Össur Skarphéðinsson geti staðist hana," skrifar Carol van Voorst, þáverandi sendiherra Bandaríkjanna, í bréfi til stjórnvalda í Washington í febrúar árið 2009.

Hún sagði Össur greinilega finna fyrir þrýstingi frá öðrum ráðherrum í minnihlutastjórn Samfylkingar og Vinstri grænna um aðhald í rekstri á vegum utanríkisráðuneytisins. Þar hafi verið vænlegur sá kostur að leggja einfaldlega niður Varnarmálastofnun.

Sendiherrann sagði Bandaríkjamenn ekki sátta við þá hugmynd, þegar Össur spurði hvort það skipti einhverju máli hvort Varnarmálastofnun eða einhver önnur stofnun færi með verkefni hennar.

Hún segist hafa hvatt Össur til að standa í vegi fyrir að dregið yrði úr útgjöldum til varnarmála. Hún segist jafnframt ætla að fá sendiherra annarra NATO-ríkja með sér í lið án þess að mikið beri á til að beita Össur þrýstingi.

„Hver króna sem Varnarmálastofnun fær til lofthelgiseftirlits fer í kaup á vörum eða þjónustu frá íslenskum seljendum," segist hún hafa sagt við Össur.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×