Haldið sofandi í öndunarvél 29. júní 2010 23:42 Starfsmanni Elkem er haldið sofandi í öndunarvél.
Starfsmanni járnblendiverksmiðju Elkem, sem brenndist illa í sprengingu fyrr í kvöld, er haldið sofandi í öndunarvél. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Elkem vegna málsins. Í tilkynningunni segir að sprenging hafi orðið um klukkan hálf átta í kvöld. „Eldtunga og málmslettur brutust út úr einum af þremur ofnum verksmiðjunnar og brenndist starfsmaður sem þar var við vinnu alvarlega. Hann var fluttur á sjúkrahús og er haldið sofandi í öndunarvél á gjörgæsludeild." „Ítarlegri viðbragðsáætlun Elkem er fylgt þegar aðstæður sem þessar skapast. Slökkt hefur verið á ofnum verksmiðjunnar og starfsemi hennar stöðvuð. Unnið er að rannsókn á tildrögum slyssins og verður upplýst nánar um málsatvik þegar frumathugun lýkur. Slökkvilið Akraness hefur ráðið niðurlögum þeirra elda sem kviknuðu og stendur nú brunavakt í verksmiðjunni. Sérfræðingar í áfallahjálp eru mættir í verksmiðjuna og sinna því starfsfólki sem var að störfum þegar óhappið varð. Stjórnendur Elkem á Íslandi harma þetta alvarlega vinnuslys. Samræmdar öryggiskröfur Elkem eru miklar og þrautreyndar en í kjölfar slyssins verða allir verkferlar yfirfarnir og gaumgæfðir eins og frekast er unnt," segir í tilkynningunni frá Elkem á Íslandi.
Innlent Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Fleiri fréttir Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Sjá meira