NBA: Indiana Pacers neitar að fara í sumarfrí Stefán Árni Pálsson skrifar 23. apríl 2011 23:15 Danny Granger átti fínan leik fyrir Indiana í kvöld. Mynd. / AP
Indiana Pacers vann í kvöld fjórða leikinn gegn Chicago Bulls, 89-84, í fyrstu umferð úrslitakeppni NBA. Staðan í einvíginu er því 3-1 fyrir Bulls og enn á brattann að sækja fyrir Pacers. Indiana Pacers var með yfirhöndina nánast allan leikinn og höfðu til að mynda 18 stiga forskot í fjórða leikhluta. Besta lið NBA-deildarinnar neitaði aftur á móti að gefast upp og á einhvern ótrúlegan hátt náðu þeir að minnka muninn niður í þrjú stig, 87-84, þegar 15 sekúndur voru eftir og Bulls með boltann. Derrick Rose stillti upp í leikkerfi sem virtist ekki ætla að ganga upp. Allt í einu stóð Carlos Boozer, leikmaður Bulls, einn og yfirgefin fyrir utan þriggja stiga línuna og boltinn var rakleitt sendur til hans þegar um 5 sekúndur voru eftir. Boozer er ekki þekktasta þriggja stiga skyttan og skot hans geigaði og Indiana vann fyrsta leik sinn í einvíginu. Þess má geta að Carlos Boozer hefur aðeins tekið tíu þriggja stiga skot á ferlinum og aðeins hitt úr einu. Kannski ekki besti kosturinn hjá Chicago Bulls til að loka leikjum. Danny Granger skoraði 24 stig fyrir Pacers og tók 10 fráköst, en hann átti virkilega got kvöld. Joakim Noah, leikmaður Chicago Bulls, skoraði 21 stig og tók 14 fráköst. Derrick Rose náði sér ekki eins vel á strik og í fyrstu þremur leikjum einvígisins, en hann skoraði 15 stig og gaf 10 stoðsendingar sem er samt sem áður fínn leikur fyrir flesta.
NBA Mest lesið Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Keppnin stoppuð eftir árekstur Leclerc Formúla 1 Landsliðsþjálfarinn á leið á spítalann: „Þetta er sjokk“ Fótbolti Yngsti sigurvegari í sögu Mónakó Formúla 1 Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira