Zlatan Ibrahimovic meistari áttunda tímabilið í röð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. maí 2011 15:30 Zlatan Ibrahimovic fagnar hér titlinum í gær. Mynd/AP
Svíinn Zlatan Ibrahimovic varð í gærkvöldi ítalskur meistari með félögum sínum í AC Milan og hélt þar með áfram ótrúlegri sigurgöngu sinni. Þetta er í níunda sinn á ferlinum sem Zlatan verður meistari með sínu félagi en hann hefur nú fagnað meistaratitli á hverju ári frá og með tímabilinu 2003-2004. Zlatan varð hollenskur meistari á sínu síðasta tímabili með Ajax veturinn 2003-04 og vann síðan ítalska titilinn á báðum árum sínum með Juventus (2004-05 og 2005-06). Báðir titlarnir með Juventus voru seinna teknir af Juve vegna Calciopoli-hneykslisins þar sem forráðamenn félagsins voru uppvísir af því að semja um úrslit leikja. Zlatan fór í framhaldinu yfir til Inter Milan þar sem hann var ítalskur meistari öll þrjú tímabilin sín áður en hann fór til Barcelona fyrir tímabilið 2009-10 og vann þar spænska meistaratitilinn. Zlatan varð síðan í gær meistari á sínu fyrsta ári með AC Milan en félagið hafði þá ekki unnið ítalska meistaratitilin síðan 2004. Zlatan hefur spilað frábærlega á þessu tímabilið en hefur að sjálfsögðu lent í allskyns vandræðum líka. Tölfræðin er ekki slæm enda búinn að skora 14 mörk og gefa 11 stoðsendingar í 25 leikjum. Zlatan hefur nú orðið meistari átta ár í röð með liðum sínum og undanfarin fimm tímabil hefur hann skorað 14 mörk eða fleiri fyrir sín lið.
Ítalski boltinn Mest lesið Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Íslenski boltinn Fyrrverandi kærasta kærir leikmann Liverpool Enski boltinn Ný keppni FIFA sem enginn virðist vilja spila í Fótbolti Fljótasti Íslendingurinn er frá Hong Kong: „Meira en velkominn í landslið Íslands“ Sport Cristiano Ronaldo óttast að tími hans sé að renna út Fótbolti Björgvin Karl með loforð eftir vonbrigði helgarinnar Sport Nýstárlegur undirbúningur fyrir landsleik Fótbolti Coote dómari í enn verri málum Enski boltinn „Vinsamlegast látið hann í friði“ Fótbolti Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sinnir herskyldu á netinu Tekur við Roma á ný 73 ára gamall Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Nýstárlegur undirbúningur fyrir landsleik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Gæti fengið sjö leikja bann fyrir rasisma í garð samherja Kane gagnrýnir þá sem drógu sig út úr landsliðshópnum Fyrrverandi kærasta kærir leikmann Liverpool Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“ Ný keppni FIFA sem enginn virðist vilja spila í „Vinsamlegast látið hann í friði“ Cristiano Ronaldo óttast að tími hans sé að renna út Sjáðu allt sem Rúben Amorim gerði á móti Man. Utd í Meistaradeildinni Martröð fyrir markakónginn í lokaumferðinni Coote dómari í enn verri málum Misskemmtilegt kvöld hjá íslensku konunum í Meistaradeildinni Kanté fær fyrirliðabandið hjá Frökkum Viðurkennir mistök sem bitnuðu illa á Man Utd í lokaleik Ten Hag Sá sem beit mótherja mætir ekki Íslandi Reiddist blaðamanni: „Þú ert alveg vonlaus“ Furða sig á fangelsisdómnum sem forsetinn fékk Tómas tryggði strákunum sigur á Aserum Skuldar engum neitt vegna Guðjohnsen nafnsins Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt Vildi ekki deila Match of the Day með konu og hafnaði tilboði BBC Tengdasonur Roy Keane í enska landsliðinu Óþekkjanlegur Adriano: „Ég drekk á hverjum degi“ Hætt eftir drónaskandalinn Frönsk fótboltastjarna fékk fangelsisdóm fyrir kynferðisbrot Sjá meira