Hjartnæm þakkaræða Derrick Rose: Þetta er allt mömmu að þakka Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. maí 2011 09:15 Derrick Rose með verðlaunin sín. Mynd/AP
Derrick Rose hjá Chicago Bulls tók við verðlaunum í gær sem besti leikmaðurinn í NBA-deildinni og það fór ekkert framhjá neinum að þessum hlédræga leikmanni leið ekkert alltof vel upp á sviðinu. Það var annar bragur á þessari afhendingu en þeirri hjá LeBron James sem setti á svið mikla sýningu þegar hann valinn bestur undanfarin tvö tímabil. Rose vildi bara komast sem fyrst inn á völlinn og láta verkin tala sem og hann gerði síðan seinna um kvöldið í góðum sigri á Atlanta Hawks. Þakkaræða Rose var samt mjög hjartnæm og þar þakkaði hann mömmum sinni sérstaklega fyrir hversu langt hann væri kominn í körfuboltanum. Hann sagði að hún bæri ábyrgð á hans stóra hjarta. „Þetta er allt mömmu að þakka. Ástæðan fyrir því að ég spila eins og ég spila er að ég hugsa alltaf um mömmu mína og það sem hún þurfti að gera til þess að passa upp á mig. Ég elska þig og ég met mikils að þú sért í mínu lífi," sagði Derrick Rose meðal annars í þessarri vasaklúta þakkaræðu sinni en mamma hans Brenda Rose, var að sjálfsögðu mætt á staðinn. Rose er aðeins 22 ára gamall og yngsti leikmaðurinn í sögunni til þess að vera valinn bestur. Hann var með 25 stig og 7.7 stoðsendingar að meðaltali á tímabilinu og hjálpaði Chicago Bulls að ná besta árangri allra liða í deildarkeppninni. Derrick Rose kemst líka í hóp með Michael Jordan en þeir eru einu leikmennirnir í sögu Chicago Bulls sem hafa fengið þessi virtu verðlaun.
NBA Mest lesið Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Keppnin stoppuð eftir árekstur Leclerc Formúla 1 Landsliðsþjálfarinn á leið á spítalann: „Þetta er sjokk“ Fótbolti Yngsti sigurvegari í sögu Mónakó Formúla 1 Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira