Durant og Westbrook í hóp með kunnum köppum í gær Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. maí 2011 23:30 Kevin Durant og Russell Westbrook. Mynd/AP
Kevin Durant og Russell Westbrook fóru á kostum með liði Oklahoma City Thunder í öruggum 15 stiga sigri á Memphis Grizzlies, 105-90, í nótt í hreinum úrslitaleik liðanna um sæti í úrslitum Vesturdeildarinnar. Báðir komust í hóp með kunnum köppum með frammistöðu sinni. Kevin Durant skoraði 39 stig í leiknum og Russell Westbrook var með þrefalda tvennu, 14 stig, 14 stoðsendingar og 10 fráköst. Durant skoraði 21 af 39 stigum sínum í þessum leik eftir stoðsendingar frá Westbrook. Síðustu tvö tvíeyki til þess að skila svona tölum í leik í úrslitakeppninni voru Kareem Abdul-Jabbar og Magic Johnson annarsvegar (Los Angeles Lakers, 1980) og þeir Michael Jordan og Scottie Pippen hinsvegar (tvisvar sinnum með Chicago Bulls, 1992-93). Westbrook varð aðeins fimmti leikmaðurinn í sögu NBA sem nær þrefaldri tvennu í sjöunda leik en hinir eru Jerry West (1969), Larry Bird (1984), James Worthy (1988) og Scottie Pippen (1992). Það hafa ennfremur aðeins þrír leikmenn skoraði fleiri stig í sínum fyrsta "Sjöunda leik" í úrslitakeppni en það eru þeir Dominique Wilkins (47 stig fyrir Atlanta Hawks á móti Boston 1988), Oscar Robertson (43 stig fyrir Cincinatti Royals á móti Boston Celtics) og Calvin Murphy (42 stig fyrir Houston Rockets á móti San Antonio Spurs 1981). Oklahoma City Thunder mætir Dallas Mavericks í úrslitum Vesturdeildarinnar og hefst einvígið með leik eitt í Dallas annað kvöld.
NBA Mest lesið Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Keppnin stoppuð eftir árekstur Leclerc Formúla 1 Landsliðsþjálfarinn á leið á spítalann: „Þetta er sjokk“ Fótbolti Yngsti sigurvegari í sögu Mónakó Formúla 1 Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira