NBA í nótt: Memphis fékk oddaleik Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 14. maí 2011 11:00 Zach Randolph átti enn einn stórleikinn fyrir Memphis í nótt. Mynd/AP
Memphis jafnaði í nótt metin í rimmu sinni gegn Oklahoma City með sigri á heimavelli, 95-83, og knúði þar með fram oddaleik. Oklahoma City hefði með sigri tryggt sér sæti í úrslitum Vesturdeildarinnar gegn Dallas en fær annað tækifæri til að koma sér þangað þegar liðin mætast í Oklahoma City á sunnudagskvöldið. Leikmenn Dallas eru reyndar búnir að fá fína hvíld eftir að liðið sópaði LA Lakers úr úrslitakeppninni, 4-0. Eins og svo oft áður í úrslitakeppninni var Zach Randolph gulls ígildi fyrir Memphis. Hann skoraði 30 stig og tók þrettán fráköst fyrir sína menn. það var þó Oklahoma City sem byrjaði betur í leiknum en liðið var með undirtök í fyrri hálfleik. Memphis átti hins vegar frábæran seinni hálfleik og vann hann með samtals 22 stiga mun, 51-29. Memphis varð í áttunda sæti í Vesturdeildinni en gerði sér lítið fyrir og sló út efsta liðið, San Antonio, í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. Memphis vann því sinn sjöunda leik í úrslitakeppninni í nótt en ekkert lið í sömu stöðu hefur unnið svo marga leiki í úrslitakeppni Vesturdeildarinnar. OJ Mayo skoraði sextán stig fyrir Memphis og Mike Conley ellefu stig og tólf stoðsendingar. Russell Westbrook skoraði 27 stig fyrir Oklahoma City og James Harden fjórtán. Mestu munaði fyrir liðið að Kevin Durant, stigahæsti leikmaður NBA-deildarinnar, náði sér engan veginn á strik. Hann skoraði aðeins ellefu stig og nýtti aðeins þrjú af fjórtán skotum sínum utan af velli.
NBA Mest lesið Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Keppnin stoppuð eftir árekstur Leclerc Formúla 1 Landsliðsþjálfarinn á leið á spítalann: „Þetta er sjokk“ Fótbolti Yngsti sigurvegari í sögu Mónakó Formúla 1 Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira