Kröfu Geirs hafnað 11. júní 2011 13:35 Geir H. Haarde Mynd/Anton Brink
Landsdómur hafnaði í gær þeirri kröfu Geirs H. Haarde að dómendur og varamenn, sem Alþingi kaus til sex ára setu í landsdómi árið 2005, víki sæti í máli sínu. Geir lagði kröfu sína fram við þingfestingu málsins þann 7. júní síðastliðinn en hann segir þá dómara sem í dóminum sitja vera vanhæfa þar sem óhlutdrægni þeirra megi draga í efa. Hann bendir á að Alþingi, sem gegnir hlutverki saksóknara í málinu, hafi samþykkt lög sem geri það að verkum að dómarar landsdóms ljúki meðferð í máli Geirs þó svo kjörtímabil þeirra sé á enda, en ef lögin hefðu staðið óbreytt hefðu nýir dómarar verið kjörnir og tekið sæti í dóminum þann 11. maí síðastliðinn. Í kröfunni segir að Alþingi, sem er handhafi ákæruvaldsins í málinu, hafi þannig valið dómara til að fara með málið og brjóti þetta gegn stjórnarskrárvörðum rétti Geirs til málsmeðferðar fyrir óvilhöllum dómstóli. Landsdómur vísar hinsvegar í ákvæði 48. gr.laga um stéttarfélög og vinnudeilur, en samkvæmt 4. málslið þeirrar greinar gildir sú regla að dómarar, sem byrjað hafa meðferð máls fyrir Félagsdómi, skuli ljúka því þótt kjörtímabil þeirra sé á enda. Sama regla eigi við Landsdóm þar sem þessir sérdómstólar tveir séu hliðstæðir að því er varðar tímabundna setu dómara. Auk þess bendir dómurinn á að þessi regla gildi einnig um Mannréttindadómstól Evrópu.
Landsdómur Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira