Verja 30 milljörðum í skóla- og frístundamál Jón Hákon Halldórsson skrifar 15. nóvember 2011 17:37
Heildarútgjöld í fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar nema 62,4 milljörðum króna á næsta ári, samkvæmt fjárhagsáætlun sem kynnt var í dag. Samkvæmt endurskoðaðri áætlun fyrir árið í ár nema heildarútgjödl 58,8 milljörðum og því er ljóst að þau hækka um tæpa 3,6 milljarða króna. Stærsti málaflokkurinn er sem fyrr skóla- og frístundasvið en rétt rúmlega 30 milljörðum verður varið í hann á næsta ári, samkvæmt áætluninni. Tæpir 11, 6 milljarðar renna til velferðarsviðs og fimm milljarðar renna til íþrótta- og tómstundasviðs. Í frumvarpinu, sem Jón Gnarr borgarstjóri, mælti fyrir í dag kemur fram að jafnvægi hafi verið náð í rekstri Reykjavíkurborgar eftir tímabil þriggja ára niðurskurðar. Tekist hafi að ná utan um erfiða fjárhagsstöðu borgarinnar og fyrirtækja hennar. Þar kemur jafnframt fram að nauðsynlegar aðgerðir sem farið hafi verið í til að bæta fjárhag Orkuveitu Reykjavíkur hafi eytt óvissu og skilað sér nú í umtalsvert meira öryggi fyrir rekstur Reykjavíkurborgar. Niðurgreiðsla skulda Orkuveitunnar sé þegar hafin.Hanna Birna Kristjánsdóttir gagnrýnir frumvarpið.Hanna Birna Kristjánsddóttir, oddviti borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins, gagnrýnir frumvarpið. Hún segir að meirihlutinn ætli að fá 500 milljónir vegna gjaldskrárhækkana frá borgarbúum á árinu 2012. Þetta sé gert þrátt fyrir það að ekki sé um tekjuskerðingu að ræða hjá borginni heldur aukist skatttekjur þvert á móti um 4,2 milljarða á milli ára. Frá í fyrra hafi skatttekjur borgarinnar aukist um 15% og samt sjáist ekki fyrir endann á gjaldskrárhækkunum og skattheimtu hjá meirihlutanum.
Mest lesið Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Viðskipti innlent „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Viðskipti innlent Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Viðskipti innlent Andri frá Origo til Ofar Viðskipti innlent Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Viðskipti innlent Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Sjá meira