Segir innanríkisáðherra koma í veg fyrir samkeppni í ferðaþjónustu Jóhanna Margrét Gísladóttir skrifar 28. nóvember 2011 19:45 „
Innannríkisráðherra er að reyna að koma í veg fyrir samkeppni í íslenskri ferðaþjónustu," segir sölu og markaðsstjóri Allrahanda, Þórir Garðarson, sem hóf akstur milli Keflavíkurflugvallar og Reykjavíkur fyrir einungis níu mánuðum en ráðherra vill nú gefa út einkaleyfi fyrir akstrinum. Tvö fyrirtæki bjóða nú rútuferðir milli Keflavíkurflugvallar og Reykjavíkur, annars vegar Kynnisferðir og hins vegar Allrahanda sem hóf ferðir í lok mars. Sú samkeppni verður nú hins vegar úr sögunni ef breyting á lögum um fólksflutninga verða að veruleika. Í lögunum er vegagerðinni gefin heimild til að gefa út einkaleyfi á fólksflutningum á ákveðnum leiðum svo sem leiðinni milli Keflavíkurflugvallar og Reykjavíkur. „Menn eru að kalla eftir samkeppni og mér sýnist að ráðherra sé með þessu að reyna að koma í veg fyrir samkeppni í íslenskri ferðaþjónustu," segir Þórir. Hann segir sérleyfi Kynnisferða hafa orðið til þess að fargjöld með Flugrútunni hækkuðu um tæp 130 prósent og það sé óeðlilegt að atvinnulífinu sé ekki treyst fyrir að halda uppi samkeppni. „Ef að menn ætla sér að vera í þjónustu þá verða menn að sinna viðskiptavinum alla daga ársins, allan sólarhringinn, það eru þeir sem ráða því hvenær þjónustan er til staðar og þeir sem ekki geta verið til staðar þeir falla bara út af markaðnum," segir Þórir. Hann vonar að Ögmundur muni sjá að útiloka samkeppni gangi ekki upp. „Ég held að það sé alveg klárt að þjónustan mun breytast verulega, hún mun örugglega ekki batna eins og hún gerir í samkeppni og ég held að þetta sé bara stórt skref aftur á bak," segir Þórir að lokum.
Mest lesið Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Viðskipti innlent Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Viðskipti innlent Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Viðskipti innlent Hvetur eigendur Tesla til að fylgjast með bilunum Neytendur Fleiri fréttir Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Sjá meira