Hagar keyptu í 365 fyrir 810 milljónir eftir hrun MH og ÞSJ skrifar 28. nóvember 2011 09:32 Finnur Árnason, forstjóri Haga.
Hagar keyptu hlut í 365 miðlum ehf. fyrir 810 milljónir króna skömmu eftir bankahrun og fjármögnuðu það með handbæru fé frá rekstri. Helmingur fjárfestingarinnar var seldur Jón Ásgeiri Jóhannessyni, þáverandi aðaleiganda Haga, innan sama fjárhagsárs á sama gengi, eða 405 milljónir króna. Hinn helmingurinn, sem upphaflega kostaði 405 milljónir króna, var seldur fyrir andvirði undir 100 milljónir króna til 365 miðla, aðila fjárhagslega tengdum Jóni Ásgeiri. Hagar töpuðu því um 300 milljónum króna á viðskiptunum. Þetta kemur fram í skráningarlýsingu Haga sem birt var í morgun. Þar segir einnig að öll viðskiptin séu að fullu uppgerð. Kaupin áttu sér stað 2. nóvember 2008, um mánuði eftir bankahrun. Þá var greint frá því að hópur fjárfesta undir stjórn Jóns Ásgeirs hefði greitt 1,5 milljarða króna inn í 365 og keypt allt hlutafé í 365 miðlum undir merki nýs fjölmiðlafélags, sem hét þá Rauðsól. Auk þess tók hópurinn yfir skuldir upp á 4,4 milljarða króna. Rauðsól, sem hét einnig um tíma Sýn, var síðan sameinað 365 miðlum haustið 2009. Árni Hauksson, sem í dag á stóran hlut í Högum, sat í stjórn 365 þegar kaupin áttu sér stað. Hann, einn stjórnarmanna, greiddi atkvæði gegn sölunni og sagði sig í kjölfarið úr stjórn 365. Ingibjörg S. Pálmadóttir, eiginkona Jóns Ásgeirs, er í dag aðaleigandi 365 miðla. Hún á 90% af A hlutabréfum í félaginu og 100% af B hlutabréfum. 365 miðlar eiga og reka m.a. Fréttablaðið, Vísi, Stöð 2 og Bylgjuna. Skráningarlýsingu Haga má sjá hér að neðan.https://newsclient.omxgroup.com/cdsPublic/viewDisclosure.action?disclosureId=480099&messageId=586780
Mest lesið Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Viðskipti innlent Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Viðskipti innlent Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Viðskipti innlent Hvetur eigendur Tesla til að fylgjast með bilunum Neytendur Fleiri fréttir Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Sjá meira